Staðsetning:
Hnit: 65° 14.285'N, 21° 22.198'W
Daglegur veiðitími
Leyfilegt er að veiða allan sólarhringinn.
Veiðitímabil
Heimilt að veiða allt árið um kring.
Laxárvatn í Dölum - Vesturland
Laxárvatn er á Hólmavatnsheiði í Dölum.
Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi
Vatnið er um 180 km frá Reykjavík, eða um 30 km frá Búðardal. Ekið er um Bröttubrekku í áttina að Búðardal, ef komið er að sunnan. Rétt áður en komið er að Laxá í Dölum er beygt upp Laxárdal á þjóðvegi 59 og ekið áleiðis 24,8 km að bænum Sólheimum þar sem veiðimenn skrá sig. Þaðan er um 5 km vegur upp á heiði, en hann er ekki greiðfær fólksbílum, þó að hægt sé að aka þar á vel útbúnum og háum fjórhjóladrifsbílum. Jepplingar og jeppar hentar þar að sjálfsgöðu best.
Upplýsingar um vatnið
Hólmavatn er um 1 km2 að stærð og í um 190 m hæð yfir sjávarmáli.
Veiðisvæðið
Veiða má í öllu vatninu.
Gisting
Veiði
Góð veiði er í vatninu en þar er einungis urriði. Algeng stærð fiska er 1-3 pund.
Agn
Leyfilegt agn er fluga, maðukur og spónn. Stranglega bannað er að leggja net.
Besti veiðitíminn
Reglur
Veiðivörður
Daði Einarsson á Sólheimum.
Request had insufficient authentication scopes.