Staðsetning:
Hnit: 66° 2.408'N, 19° 20.023'W
Daglegur veiðitími
Heimilt er að veiða frá kl. 8:00 til 24:00.
Veiðitímabil
Hefst 1. maí og lýkur 20. september.
Sléttuhlíðarvatn - Norðurland
Sléttuhlíðarvatn er mitt á milli Hofsós og Siglufjarðar og liggur rétt við þjóðveginn í landi Hrauns.
Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi
Vegalengd frá Reykjavík er um 360 km., 21 km. frá Hofsósi og 50 km. frá Sauðárkróki
Upplýsingar um vatnið
Vatnið er 0,76 km2 að stærð og í 14 m. hæð yfir sjávarmáli.
Veiðisvæðið
Eingöngu er leyfilegt að veiða í landi Hrauns. Skilti eru við veiðimörk.
Gisting
Verið er að vinna að uppbyggingu á tjaldsvæði sem ætti að vera komið í gangið fyrir sumarið 2021. Þá býðst korthöfum að kaupa aðgang að tjaldsvæðinu við vatnið hjá veiðiverði á Hrauni. Einnig er hægt að leigja sumarhús nálægt vatninu og brogar sig að panta það með góðum fyrirvara hjá veiðiverði.
Veiði
Í vatninu eru bæði sjógengnir og staðbundnir fiskar. Sjóbleikja og urriði veiðast þar í miklu magni.
Agn
Eingöngu er leyfð veiði með flugu, maðk og spóni.
Besti veiðitíminn
Yfirleitt veiðist best í maí og júní, en þó ágætlega allan veiðitímann.
Annað
Landeigandi ber enga ábyrgð á tjóni er korthafar Veiðikortsins kunna að verða fyrir, eða öðru sem upp kann að koma í tenglsum við veru veiðimanna á viðkomandi veiðisvæði.
Reglur
Góð umgengni er skilyrði. Allur akstur um landið skal vera í samráði við landeigenda. Veiðimenn eru beðnir um að skilja ekki eftir sig rusl. Korthafar þurfa að skrá sig á Hrauni og sýna þarf bæði Veiðikortið og persónuskilríki. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.
Veiðivörður
Magnús Pétursson á Hrauni, s: 453-7422 eða 618-0402