Staðsetning:
Hnit: 64° 14.697'N, 21° 5.423'W
Daglegur veiðitími
Heimilt er að veiða frá kl. 8:00 til 24:00.
Veiðitímabil
Hefst 1. apríl og lýkur 30. september.
Vífilsstaðavatn - Suðurland
Vífilsstaðavatn er í Garðabæ, austan við Vífilsstaði.
Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi
Vatnið er við Vífilsstaði í Garðabæ.
Upplýsingar um vatnið
Vatnið er í 38 m. hæð yfir sjávarmáli og mælist um 0,27 km2 að flatarmáli. Það er mjög vinsælt meðal veiðimanna og þykir mörgum ómissandi að fara þangað á vorin til að fá fyrstu tökur ársins, en einnig til að fara yfir veiðibúnaðinn fyrir sumarið. Þess má geta, að Vífilsstaðavatn er tilvalið til að æfa fluguköst.
Veiðisvæðið
ATHUGIÐ AÐ BANNAÐ ER AÐ VEIÐA Á MERKTU SVÆÐI NORÐANMEGIN Í VATNINU vegna verndunar Flórgoðans. - Sjá kort. Að því frátöldu er heimilt að veiða í öllu vatninu. Best er að veiða sunnanmegin í vatninu, en einnig undir hlíðinni að norðaustanverðu.
Gisting
Ekki er heimilt að tjalda við vatnið.
Veiði
Í vatninu fæst einkum urriði og bleikja. Mest er um smábleikju, en einnig veiðist töluvert af stærri fiski, yfirleitt 1-2 pund. Fiskurinn úr vatninu er mjög góður matfiskur.
Agn
Aðeins er heimilt að nota flugur, maðk og spón. Öll önnur beita og smurefni stranglega bönnuð í vatninu.
Besti veiðitíminn
Jafnan veiðist best á vorin, í maí og júní.
Annað
Landeigandi ber enga ábyrgð á tjóni er korthafar Veiðikortsins kunna að verða fyrir, eða öðru sem upp kann að koma í tenglsum við veru veiðimanna á viðkomandi veiðisvæði.
Reglur
Vífilsstaðavatn var friðlýst þann 2. nóvember 2007 sem friðland. Vatnið er í eigu og umsjón Garðabæjar og nýtur ákvæða laga um friðýsingar sbr. lög um náttúruvernd nr. 60/2013. Veiðimenn og útivistarfólk er vinsamlegast beðið að ganga vel um svæðið og fylgja leiðbeiningum á skiltum friðlandsins. Hundar skulu vera í bandi í friðlandinu og notkun báta, beljubáta og kayjaka er óheimil. Sýna þarf Veiðikortið og persónuskilríki þegar veiðivörður vitjar veiðimanna. Algjört hundabann er í friðlandi Vífilsstaðavatns frá 15. apríl til 1. júlí. Ítrekum óskir til veiðimanna að ganga vel um friðlandið og alls ekki henda girni, krókum né rusli á jörðina þar sem það er stórhættulegt fuglalífinu.
Veiðivörður
Linda Björk Jóhannsdóttir, GSM: 820-8574